Iceland

Filter
Filter
Sort bySort Newest
  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Í sívaxandi greiðslukortavæðingu, þar sem reiðufé fer að vera æ sjaldséðara, verða rafrænar upplýsingar um greiðslukort æ oftar skotmörk óprúttinna aðila. Eftir miklu er að slægjast og getur tjón af heppnuðum afritunum einungis örfárra greiðslukorta numið milljónum króna. Í nóvembermánuði 2006 freistuðu tveir erlendir menn gæfunnar í þessum efnum hér á landi en höfðu ekki erindi sem erfiði. Lauk þar með að öllum líkindum löngum og farsælum ferli þeirra við þessa iðju víðs vegar um Evrópu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    „Leyndir kraftar hins illa gera fólki kleift að fara lengra en villtustu draumar ná." (Eugen Kogon.)Það er ekki óþekkt að fólk ákveði að binda enda á líf sitt ásamt því að taka líf annarra. Hvað veldur er erfitt að segja. Fyrir flest okkar er erfitt, ef ekki ómögulegt að skilja þetta. Í mörgum tilfellum er um það að ræða að foreldrar taka líf barna sinna og síðan sitt eigið líf. Þess konar atburðir gerast oft í trúarhópum. Líka hefur komið fyrir að ungt fólk hafi gert það sama.Það mál sem nú verður sagt frá snýst ekki um trú heldur um það hvernig maður reynir á afar skipulagðan hátt að koma eiginkonu sinni fyrir kattarnef. Hann sannfærir konuna um að þau muni bæði deyja til að fara í nýja vídd þar sem ekkert illt fyrirfinnst.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    9.99 kr.

    Hela (kallorð fyrir lögregluna í Helsinki)! Tveir lögreglumenn hafa verið skotnir. Mennirnir á hundrað-fimm-þrír hafa verið skotnir. Félagar okkar hafa verið teknir af lífi, skotnir í höfuðið. Annar tvisvar sinnum, við vitum ekki með hinn enn þá. Hvar? Kaptensgata – Fabriksgata. Skotnir í höfuðuið tvisvar sinnum. Þeir liggja á göt- unni. Sendið meira lið hingað strax! Hela hérna. Sjúkrabílar eru á leiðinni. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 28.99 kr.

    Ef kona, sem er innflytjandi, finnur sér kærasta sem fjölskylda hennar er ekki ánægð með eða ef hún á annan hátt brýtur í bága við menningar- og trúarsiði fjölskyldunnar hættir hún lífi sínu. Í hverri viku eru framin afbrot í Danmörku, eins og hótanir og ofbeldi, vegna trúarlegra siða eða heiðursviðmiðana. Þetta varðar oftast nær konur því að konan er lykillinn að virðingarverðri fjölskyldu.Þessi frásögn fjallar um heiðursdrápið á hinni 18 ára gömlu Ghazalu Khan sem stuttu áður hafði gifst hinum 26 ára gamla Emal Khan sem fjölskylda hennar samþykkti ekki.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Árin 2005 og 2006 eru höfundi minnisstæð enda fékkst hann þá við lögreglu- rannsóknir tveggja mála sem vöktu óhug þrautreyndra lögreglumanna. Hvernig gat hegðun slíks ljúflings orðið sem raun bar vitni í návist þeirra kvenna sem hann komst í tæri við? Hegðun sem bar vott um mannvonsku, illsku og djúpstæða kvenfyrirlitningu. Þessari spurningu verður seint svarað. Vissulega væri fróðlegt fyrir vísindamenn að skoða lífssögu þessa manns og finna orsök ógæfu hans.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    28.99 kr.

    Fallegan vordag í lok maí 1999 varð sænska þjóðin aftur gripin óhug vegna hrylli- legs glæps. Síðast hafði þjóðinni liðið svona þegar Olof Palme forsætisráðherra var myrtur á köldu vetrarkvöldi í febrúar árið 1986. Í þetta sinn var um að ræða morð á lögreglumönnunum Olov Borén og Robert Karlström í Östergötaland. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Fljótsdæla saga gerist á Austurlandi, einkum í Fljótsdal. Sagan er sögð í framhaldi af Hrafnkels sögu Freysgoða. Einnig tengist hún Droplaugasona sögu og segir að hluta til frá sömu sögupersónum, Helga og Grími Droplaugarsonum. Stíll sögunnar er sérstæður og líflegur en persónur sögunnar eru fjölbreyttar og eftirminnilegar.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Bárðar saga Snæfellsáss fjallar um Bárð nokkurn sem var hálfur maður og hálfur risi. Hann flúði land í Noregi og nam land á Snæfellsnesi. Síðar gekk hann svo í jökulinn og gerðist landvættur Snæfellinga.Sagan gerist á landnámsöld og er rituð í svokölluðum ýkjustíl. Hún segir frá tröllum, skapmiklum konum og hugdjörfum mönnum. Sögusvið bókarinnar er utanvert Snæfellsnes og tröllabyggðir Noregs. Átök kristni og heiðni koma við sögu, þar sem Bárður mætir sjálfum Ólafi Tryggvasyni, Noregskonungi.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Droplaugarsona saga er talin með elstu Íslendingasögum, líklega frá því fyrir eða um miðja 13. öld. Sagan segir frá sonum Droplaugar, þeim Helga og Grími. Sagan gerist á Austurlandi, beggja megin Lagarfljóts en hún skarast að hluta til á við Fljótsdælasögu sem gerist einnig þar eystra.Annar bróðirinn, Helgi, átti í deilum við nafna sinn Ásbjarnarson. Lýsingar á bardögum þeirra nafna eru með þeim eftirminnilegri í fornritum. Litríkir karakterar skreyta söguna og kvenskörungar á borð við þær Droplaugu, Gró á Eyvindará, Álfgerði lækni á Ekkjufelli og Þórdísi todda koma einnig við sögu.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Færeyinga saga gerist í Færeyjum á 10 öld. Verkið segir frá þeim Sigmundi Brestissyni og Þrándi í Götu sem áttu í deilum um yfirráð í Eyjunum um árið 1000. Þrándur sá er talinn einn eftirminnilegasti skúrkur íslenskra fornsagna en Sigmundur er svarinn í ætt við hetjur eins og Gunnar á Hlíðarenda.Sagan fjallar um kristnitöku í Færeyjum en líkt og á Íslandi gekk hún ekki átakalaust fyrir sig. Færeyinga saga er skemmtileg og nokkuð ólík helstu Íslendingasögum.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Bjarnar saga Hítdælakappa segir frá Birni Arngeirssyni frá Borg í Mýrum, afkomanda Egils Skalla-Grímssonar. Sagan fjallar um Björn þennan og deilur hans við mann að nafni Þórður Kolbeinsson. Sögusvið bókarinnar er Borgarfjörður en Björn hélt einnig utan þar sem hann hlaut lof fyrir hreysti sitt. Sagan er heldur frumstæð en í senn áhugaverð og skemmtileg.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Brennu-Njáls saga er segnnilega þekktasta Íslendingasagan og er hún kennd við flesta menntaskóla á Íslandi enn í dag. Sagan fjallar um hugrakkar hetjur sem leggja allt undir til þess að verja sæmd sína og heiður. Atburðir sögunnar gerast flestir á suðurlandi en þó einnig utan landsins.Í upphafi segir frá lífi fólksins á Hlíðarenda, þeirra Gunnars, Hallgerðar Langbrókar og sona þeirra. Síðar tekur við frásögn af lífi Njáls á Bergþórshvoli, Bergþóru konu hans og drengja þeirra. Sagan einkennist af bardögum, hefnd, tilraunum til sátta og síðast en ekki síst fjallar hún um einn hörmulegasta atburð Íslendingasagnanna, Njálsbrennu sem sagan dregur nafn sitt af.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Flóamanna saga er talin rituð um 1300 en hún hefur varðveist í tveimur útgáfum sem eru heldur frábrugðnar hvor frá annarri. Sögusviðið hennar er Gaulverjabær á Suðurlandi en einnig teygir hún sig til Noregs, Bretlands og Grænlands.Verkið fjallar um Þorgils Örrabeinsstjúp, nokkuð dæmigerða íslenska hetju sem tekur upp kristni og uppsker í kjölfarið reiði þrumuguðsins Þórs. Auk hans koma við sögu þekktar persónur eins og Ingólfur Arnarson, fóstbróður hans Leifur, Eiríkur rauði og Ásgrímur Elliða-Grímsson. Verkið er vel uppbyggt og þykir frásögnin frá dvölinni á Grænlandi áhrifamikil og nokkuð raunsönn.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Gísla saga Súrssonar er einna vinsælust Íslendingasagna og er Gísli talinn til ástsælustu hetja þeirra. Saga þessi er líklega rituð um lok 13. aldrar en sögusviðið er að mestu Vestfirðir, einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður. Talið er að kjarni sögunnar sé sannur en hún hafi þó að miklu leyti fengið á sig skáldlegan búning.Verkið fjallar um ósættir og mannvíg þar sem hinn forni frændsemisháttur ríkir. Helstu persónur bókarinnar eru Gísli Súrsson, Auður kona hans, Þorkell bróðir Gísla og Þorgrímur goði. Sagan þessi er ein þeirra Íslendingasagna sem hefur verið kennd í gunn- og menntaskólum landsins um árabil.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Grettis saga fjallar um Gretti sterka Ásmundarson frá Bjargi í Miðfirði. Hann var ógnarsterkur og hræddist fátt. Verkið segir frá æsku Grettis og uppvexti, lífshlaupi hans og óláni. Einna þekktust er sagan af útlegð hans sem endaði í Drangey í Skagafirði þar sem hann var að lokum veginn. Grettis saga telst til þekktustu og vinsælustu Íslendingasagna og er mikilvæg lesning fyrir alla unnendur þeirra.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Egils saga Skalla-Grímssonar er einna elst Íslendingasagna ásamt því að vera sú blóðugasta. Verkið fjallar aðallega um víkinga og gerist því að mestu utan landsteinanna. Aðalpersóna sögunnar er aðeins ein, Egill Skalla-Grímsson. Sá lét strax til sín taka á unga aldri og er að öllum líkindum grimmasta hetja Íslendingasagnanna.Sagan einkennist af víkingaferðum, ránum, bardögum og því sem helst einkenndi líf víkinga fyrr á öldum. Jafnframt koma við sögu ýmsir galdrar, yfirnáttúrulegar verur, rúnaletur og ásatrú.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Fóstbræðra saga gerist á síðari hluta 10. aldar og er sögusvið hennar Ísland, Grænland og Noregur. Sagan segir frá fóstbræðrunum Þormóði Kolbrúnarskáldi og Þorgeiri Hávarssyni. Þrátt fyrir sterk vinabönd og samleið eru þeir félagar ansi ólíkir. Þorgeir er vígamaður mikill og heiðinn en Þormóður er kvennamaður og skáld sem á auðvelt með að laga sig að aðstæðum og getur til að mynda tekið upp nýja trú án vandræða.Sagan er frábrugðin helstu Íslendingasögum að mörgu leyti og má þá helst nefna höfundarafstöðu. Í flestum Íslendingasögum er höfundur ósýnilegur en í þessu verki talar höfundur hér um bil beint til lesandans. Sagan þykir heillandi fyrir skemmtilegar lýsingar og sérstæðan stíl og má þess geta að Gerpla eftir Halldór Laxness er byggð á verki þessu.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Eyrbyggja saga er sérstök og heldur frábrugðin helstu Íslendingasögum. Bygging hennar er frábrugðin og persónur hennar skarast gjarnan á við það sem þekkist úr Brennu-Njáls sögu og Laxdælu sem dæmi. Sögusviðið er norðanvert Snæfellsnes um og eftir árið 1000.Sagan fjallar um Snorra goða Þorgrímsson, litríkan og blendinn málafylgjumann og segir frá valdaferli hans á hugmyndafræðilegan hátt. Verkið fjallar ekki einvörðungu um ævi Snorra heldur er það skýr þjóðfélagsspegill þess tímabils sem sagan spannar. Ljóst er að höfundur veitir samfélagslegum þáttum á söguöld mikla athygli en Sturla Þórðarson hefur gjarnan verið nefndur sem hugsanlegur höfundur sögunnar.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Eiríks saga rauða segir frá landkönnun norrænna manna bæði á Grænlandi og í Vesturheimi. Eiríkur rauði var hrakinn frá Íslandi og fór þaðan til Noregs þar sem hann tók upp kristna trú að ósk Noregskonungs. Verkið fjallar um áætlaða för Eiríks til Íslands frá Noregi en hann rak á land í Skotlandi þar sem hann varð veðurtepptur um hríð og kynntist konu. Áfram hélt hann svo en enn blésu vindar og hann endaði á því að finna Vínland.Sagan er talin hafa verið skrifuð snemma á 13. öld en hún er varðveitt bæði í Hauksbók og Skálholtsbók. Líkt og með aðrar Íslendingasögur sem varðveist hafa í fleiri en einu riti ber þeim ekki saman að öllu leyti. Þó er talið að sú útgáfa sem finnst í Skáholtsbók sé líkari upphafsgerðinni frá 13. öld.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabók töluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Óþekktur
    28.99 kr.

    Finnboga saga ramma gerist á 10. öld og er sögusvið hennar aðallega Flateyjardalur í Suður-Þingeyjasýslu og Noregur um tíma. Sagan er með yngri Íslendingasögum og talin hafa verið rituð snemma á 14. öld. Hún segir frá Finnboga ramma sem borinn var út sem barn en bjargað af því ágæta fólki Gesti og Syrpu á Tóftum í Flateyjardal.Upphaflega var Finnbogi kallaður Urðarköttur en er hann fannst var hann reifaður í urð. Síðar bjargaði hann manni að nafni Finnbogi úr sjávarháska og þegar sá maður lést gaf hann Urðarketti nafn sitt. Viðurnefnið rammi hlaut hann svo af vexti sínum en Finnbogi var mikill vígamaður. Sagan er bæði fjölskrúðug og viðburðarík.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    "Við ætluðum bara í skíðaferð til Bergen." Þetta var útskýring þriggja Rúmena eftir að lögreglan handtók þá grunaða um að hafa afritað greiðslukort margra aðila í Noregi. Lögreglumönnum, sem komu að yfirheyrslum yfir Rúmenunum, fannst framburður þeirra oft vera á mörkum gríns og alvöru. Lögreglumönnum, upprunnum í sunnanverðum Noregi, með góða þekkingu á staðháttum, fannst umhugsunarefni að menn færu í skíðaferð frá Rúmeníu til Noregs og þá til "vetraríþróttastaðarins" Bergen. Þetta var meðal annars eitt þeirra atriða sem lögreglan benti á við meðferð málsins fyrir dómi. Hinir grunuðu höfðu unnið heimavinnuna sína en ekki alveg nógu vel.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Mengun og mengunarvarnir var nokkuð sem Íslendingar höfðu litlar áhyggjur af langt fram eftir síðustu öld. Að lokum áttuðu menn sig þó á nauðsyn þess að vernda umhverfið fyrir hættulegum úrgangi og mengun af hans völdum. Sett voru lög og reglugerðir um umhverfisbrot en erfiðlega gekk að framfylgja þeim. Hér á eftir er áhugaverð frásögn um fyrsta málið um mengun á landi sem var rannsakað til loka og tekið til dóms. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Að morgni dags fannst lík stúlku liggjandi á stétt utan við íbúðarblokk í Kópavogi. Í fljótu bragði gátu menn haldið að hún hefði framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af svölum. Brátt kom þó ýmislegt í ljós sem benti til annars en það reyndist þrautin þyngri að sanna hvað þarna hafði gerst. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Klukkan 09.10 miðvikudaginn 17. september 2003 sprakk sprengja í svartri Toyota Corolla-bifreið sem var nýfarin út af bifreiðastæði við Amtssjúkrahúsið í Glostrup. Bifreiðin var komin út á götuna sem liggur frá bifreiðastæðinu þegar sprengjan sprakk.Ökumaður bifreiðarinnar var Mickey Larsen sem var 32 ára og fyrrum Bandidosmeðlimur og lést hann samstundis.Sprengingin var svo öflug að bifreiðin hentist um 20 metra í loft upp og brak úr henni ásamt líkamspörtum dreifðist yfir mjög stórt svæði. Strax eftir sprenginguna kviknaði eldur í bifreiðinni og allt brann sem brunnið gat.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Fangelsi í þrjú ár og í tvö ár og tíu mánuði urðu afleiðingarnar fyrir karlmann og konu frá Balkanlöndunum sem höfðu stundað nútímaþrælahald, verslun með stúlkur í kynferðislegum tilgangi. Dómarnir voru kveðnir upp í Gautaborg vorið 2004 og það var í fyrsta skipti sem dæmt var fyrir brot sem þessi í Svíþjóð. Hjúin voru dæmd fyrir að hafa neytt pólska stúlku til að selja sig í Danmörku og Svíþjóð. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Að myrða manneskju er alvarlegasti glæpur sem hugsast getur. Það er erfitt að flokka morð eftir því hversu alvarlegt það er en grimmdarlegt morð á óléttri unglingsstúlku hlýtur að vera með því óhugnanlegasta sem hægt er hugsa sér. Auk þess er erfitt að gera sér í hugarlund hvaða refsing sé hæfileg fyrir annan eins verknað. Í þessu máli var það barnsfaðirinn sem var morðinginn, sem var ekki til að gera málið auðveldara. Og einkennilegt var hve ákaflega tilfinningalaus og kaldlyndur hann reyndist vera eftir að sambýliskona hans hvarf. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Aðfaranótt 22. apríl, þann þriðja í páskum, árið 2003, var verðmætaflutningabíll á vegum Securitas rændur við skrifstofu Sparbanken Tanum í Grebbestad og voru fimm grímuklæddir menn að verki. Ránið var mjög gróft og mjög vel skipulagt. Ræningjarnir voru vopnaðir AK4 veiðirifflum, afsöguðum haglabyssum og skammbyssum. Þeir voru líka með sprengiefni með sér til að geta sprengt upp dyrnar á flutningabílnum ef verðirnir mundu ekki opna þær. Á meðan á ráninu stóð hótuðu ræningjarnir vörðunum lífláti, meðal annars með að öskra: "Ef lögreglan kemur skjótum við ykkur!"Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    5. nóvember 2002 var ég á kvöldvakt og um klukkan 19.00 fékk ég símtal frá rannsóknarlögreglunni í Þrændalögum. Erindið var að biðja mig um aðstoð vegna atburðar sem þeir höfðu frétt af. Blaðaljósmyndari hafði hringt í þá og spurt hvaða upplýsingar þeir hefðu um dauðsfall í Lade. Lítil stúlka átti að hafa dottið út um glugga þar og látist. Stúlkan hafði að sögn verið flutt á St. Olavs-sjúkrahúsið með sjúkrabíl.Lögreglan hafði ekki fengið neina tilkynningu um þetta eftir hefðbundnum leiðum. Tilkynningin um slysið hafði farið beint til bráðamóttöku sjúkrahússins en lögreglan hafði ekki verið látin vita. Hjá miðstöð rannsóknarlögreglunnar í Þrændalögum fékk ég þær litlu upplýsingar sem þeir höfðu um málið. Álitið var að þriggja ára stúlka hefði dottið út um glugga eða niður frá húsi og látist í kjölfarið.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    From 9.99 kr.

    Hér segir frá 33 ára manni sem verður eftirleiðis kallaður Per. 11. maí 2003 var honum rænt frá sambýlinu Kanalgården í Næstved og hann fluttur á sveitabýli í Dannemare, þar sem hann mátti þola mjög gróft og hættulegt ofbeldi og misþyrmingar á meðan grillveisla var haldin þar. Eftir grillveisluna var hann lokaður inni í heila viku, á ýmsum stöðum á Lálandi, þar til honum tókst að flýja.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.