Icelandic and Old Norse sagas
-
28.99 kr. Færeyinga saga gerist í Færeyjum á 10 öld. Verkið segir frá þeim Sigmundi Brestissyni og Þrándi í Götu sem áttu í deilum um yfirráð í Eyjunum um árið 1000. Þrándur sá er talinn einn eftirminnilegasti skúrkur íslenskra fornsagna en Sigmundur er svarinn í ætt við hetjur eins og Gunnar á Hlíðarenda.Sagan fjallar um kristnitöku í Færeyjum en líkt og á Íslandi gekk hún ekki átakalaust fyrir sig. Færeyinga saga er skemmtileg og nokkuð ólík helstu Íslendingasögum.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Bjarnar saga Hítdælakappa segir frá Birni Arngeirssyni frá Borg í Mýrum, afkomanda Egils Skalla-Grímssonar. Sagan fjallar um Björn þennan og deilur hans við mann að nafni Þórður Kolbeinsson. Sögusvið bókarinnar er Borgarfjörður en Björn hélt einnig utan þar sem hann hlaut lof fyrir hreysti sitt. Sagan er heldur frumstæð en í senn áhugaverð og skemmtileg.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Brennu-Njáls saga er segnnilega þekktasta Íslendingasagan og er hún kennd við flesta menntaskóla á Íslandi enn í dag. Sagan fjallar um hugrakkar hetjur sem leggja allt undir til þess að verja sæmd sína og heiður. Atburðir sögunnar gerast flestir á suðurlandi en þó einnig utan landsins.Í upphafi segir frá lífi fólksins á Hlíðarenda, þeirra Gunnars, Hallgerðar Langbrókar og sona þeirra. Síðar tekur við frásögn af lífi Njáls á Bergþórshvoli, Bergþóru konu hans og drengja þeirra. Sagan einkennist af bardögum, hefnd, tilraunum til sátta og síðast en ekki síst fjallar hún um einn hörmulegasta atburð Íslendingasagnanna, Njálsbrennu sem sagan dregur nafn sitt af.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Flóamanna saga er talin rituð um 1300 en hún hefur varðveist í tveimur útgáfum sem eru heldur frábrugðnar hvor frá annarri. Sögusviðið hennar er Gaulverjabær á Suðurlandi en einnig teygir hún sig til Noregs, Bretlands og Grænlands.Verkið fjallar um Þorgils Örrabeinsstjúp, nokkuð dæmigerða íslenska hetju sem tekur upp kristni og uppsker í kjölfarið reiði þrumuguðsins Þórs. Auk hans koma við sögu þekktar persónur eins og Ingólfur Arnarson, fóstbróður hans Leifur, Eiríkur rauði og Ásgrímur Elliða-Grímsson. Verkið er vel uppbyggt og þykir frásögnin frá dvölinni á Grænlandi áhrifamikil og nokkuð raunsönn.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Gísla saga Súrssonar er einna vinsælust Íslendingasagna og er Gísli talinn til ástsælustu hetja þeirra. Saga þessi er líklega rituð um lok 13. aldrar en sögusviðið er að mestu Vestfirðir, einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður. Talið er að kjarni sögunnar sé sannur en hún hafi þó að miklu leyti fengið á sig skáldlegan búning.Verkið fjallar um ósættir og mannvíg þar sem hinn forni frændsemisháttur ríkir. Helstu persónur bókarinnar eru Gísli Súrsson, Auður kona hans, Þorkell bróðir Gísla og Þorgrímur goði. Sagan þessi er ein þeirra Íslendingasagna sem hefur verið kennd í gunn- og menntaskólum landsins um árabil.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Grettis saga fjallar um Gretti sterka Ásmundarson frá Bjargi í Miðfirði. Hann var ógnarsterkur og hræddist fátt. Verkið segir frá æsku Grettis og uppvexti, lífshlaupi hans og óláni. Einna þekktust er sagan af útlegð hans sem endaði í Drangey í Skagafirði þar sem hann var að lokum veginn. Grettis saga telst til þekktustu og vinsælustu Íslendingasagna og er mikilvæg lesning fyrir alla unnendur þeirra.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Egils saga Skalla-Grímssonar er einna elst Íslendingasagna ásamt því að vera sú blóðugasta. Verkið fjallar aðallega um víkinga og gerist því að mestu utan landsteinanna. Aðalpersóna sögunnar er aðeins ein, Egill Skalla-Grímsson. Sá lét strax til sín taka á unga aldri og er að öllum líkindum grimmasta hetja Íslendingasagnanna.Sagan einkennist af víkingaferðum, ránum, bardögum og því sem helst einkenndi líf víkinga fyrr á öldum. Jafnframt koma við sögu ýmsir galdrar, yfirnáttúrulegar verur, rúnaletur og ásatrú.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Fóstbræðra saga gerist á síðari hluta 10. aldar og er sögusvið hennar Ísland, Grænland og Noregur. Sagan segir frá fóstbræðrunum Þormóði Kolbrúnarskáldi og Þorgeiri Hávarssyni. Þrátt fyrir sterk vinabönd og samleið eru þeir félagar ansi ólíkir. Þorgeir er vígamaður mikill og heiðinn en Þormóður er kvennamaður og skáld sem á auðvelt með að laga sig að aðstæðum og getur til að mynda tekið upp nýja trú án vandræða.Sagan er frábrugðin helstu Íslendingasögum að mörgu leyti og má þá helst nefna höfundarafstöðu. Í flestum Íslendingasögum er höfundur ósýnilegur en í þessu verki talar höfundur hér um bil beint til lesandans. Sagan þykir heillandi fyrir skemmtilegar lýsingar og sérstæðan stíl og má þess geta að Gerpla eftir Halldór Laxness er byggð á verki þessu.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Eyrbyggja saga er sérstök og heldur frábrugðin helstu Íslendingasögum. Bygging hennar er frábrugðin og persónur hennar skarast gjarnan á við það sem þekkist úr Brennu-Njáls sögu og Laxdælu sem dæmi. Sögusviðið er norðanvert Snæfellsnes um og eftir árið 1000.Sagan fjallar um Snorra goða Þorgrímsson, litríkan og blendinn málafylgjumann og segir frá valdaferli hans á hugmyndafræðilegan hátt. Verkið fjallar ekki einvörðungu um ævi Snorra heldur er það skýr þjóðfélagsspegill þess tímabils sem sagan spannar. Ljóst er að höfundur veitir samfélagslegum þáttum á söguöld mikla athygli en Sturla Þórðarson hefur gjarnan verið nefndur sem hugsanlegur höfundur sögunnar.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Eiríks saga rauða segir frá landkönnun norrænna manna bæði á Grænlandi og í Vesturheimi. Eiríkur rauði var hrakinn frá Íslandi og fór þaðan til Noregs þar sem hann tók upp kristna trú að ósk Noregskonungs. Verkið fjallar um áætlaða för Eiríks til Íslands frá Noregi en hann rak á land í Skotlandi þar sem hann varð veðurtepptur um hríð og kynntist konu. Áfram hélt hann svo en enn blésu vindar og hann endaði á því að finna Vínland.Sagan er talin hafa verið skrifuð snemma á 13. öld en hún er varðveitt bæði í Hauksbók og Skálholtsbók. Líkt og með aðrar Íslendingasögur sem varðveist hafa í fleiri en einu riti ber þeim ekki saman að öllu leyti. Þó er talið að sú útgáfa sem finnst í Skáholtsbók sé líkari upphafsgerðinni frá 13. öld.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabók töluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
28.99 kr. Finnboga saga ramma gerist á 10. öld og er sögusvið hennar aðallega Flateyjardalur í Suður-Þingeyjasýslu og Noregur um tíma. Sagan er með yngri Íslendingasögum og talin hafa verið rituð snemma á 14. öld. Hún segir frá Finnboga ramma sem borinn var út sem barn en bjargað af því ágæta fólki Gesti og Syrpu á Tóftum í Flateyjardal.Upphaflega var Finnbogi kallaður Urðarköttur en er hann fannst var hann reifaður í urð. Síðar bjargaði hann manni að nafni Finnbogi úr sjávarháska og þegar sá maður lést gaf hann Urðarketti nafn sitt. Viðurnefnið rammi hlaut hann svo af vexti sínum en Finnbogi var mikill vígamaður. Sagan er bæði fjölskrúðug og viðburðarík.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Ebook
- 28.99 kr.
-
From 28.99 kr. Kormáks saga gerist á tíundu öld og aðalpersónur verksins eru Kormákur Ögmundarson og hans stóra ást, Steingerður. Kormákur var eitt nafnkunnasta skáld síns tíma og segir sagan frá honum, eirðarlausum förumanni á ferð um Ísland, Noreg og Bretlandseyjar. Verkið inniheldur fjölmörg ljóð sem eignuð eru Kormáki og eru þau mörg hver ástarjátningar til Steingerðar en í sögunni má finna ríflega áttatíu dróttkvæði. Kvæðin fjalla um ástina, lof til Steingerðar en einnig má í þeim finna niðrandi orðsendingar til eiginmanns hennar. Sagan er talin vera með fyrstu Íslendingasögum sem skrifaðar voru en hún hefur varðveist vel.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
From 27.99 kr. Grænlendinga saga segir að mörgu leyti frá sama efni og Eiríkssaga rauða en þó ekki á alveg sama hátt. Hún er talin hafa verið rituð um miðja 13. öld og hefur það varðveist í Flateyjarbók.Verkið segir frá því þegar Bjarni Herjólfsson hóf leit að föður sínum sem hafði farið ásamt Eiríki rauða til Grænlands. Einnig segir frá Leifi heppna, landafundum hans og hvernig hann hlaut viðurnefni sitt. Guðríður Þorbjarnardóttir kemur einnig við sögu en sú kona var talin vera víðförlasta kona heims í kring um árið 1000. Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
From 28.99 kr. Ljósvetninga saga er varðveitt í tveimur gerðum en sú yngri inniheldur einnig nokkra sjálfstæða þætti. Verkið er ekki sérlega vel varðveitt og er bygging þess heldur sundurlaus. Talið er að sagan hafi verið rituð á 13. öld þó mögulegt sé að það hafi verið fyrr.Verkið fjallar um Þorgeir Ljósvetningagoða og syni hans en einnig um Guðmund ríka. Eftir Íslendingaþættina þrjá í sögunni er aðallega fjallað um Guðmund ríka og deilur hans við Ljósvetninga. Þórarins þáttur ofsa skipar svo lokin á bókinni þar sem Ljósvetningar koma hvergi við sögu.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
99.00 kr. A.D. Jørgensens klassiske "40 fortællinger af fædrelandets historie" bliver her udvidet til at omfatte hele Nordens historie helt tilbage fra oldtiden og frem til årene umiddelbart efter den 2. slesvigske krig i 1864.Sjældent er de nordiske landes indbyrdes forhold blevet behandlet med en indsigt og en forståelse, som den A.D. Jørgensen lægger for dagen i denne bog. Ikke alene rummer fortællingerne en uudtømmelig rigdom af folkehistorier og –sagn, der er også en historisk korrekthed, som vil gøre enhver læser klogere på hele det fællesnordiske kulturelle grundlag. Fortællingerne spænder over beretninger om de første bosættelser i Norden, om vikingernes voldsomme færden, Kalmarunionen, Den Store Nordiske Krig, der plagede Norden igennem to årtier og forfatningslivets grundlæggelse i Skandinavien.Adolph Ditlev Jørgensen (1840-1897) var en dansk forfatter, historiker og rigsarkivar, der udgav en lang række bøger om Nordens historie. I løbet af sit liv modtog A.D. Jørgensen en lang række æresbevisninger. Han blev i 1882 medlem af Det kongelige danske Selskab for Fædrelandets Historie, og året efter blev han medlem af Videnskabernes Selskab. Han blev desuden udnævnt til kommandør af 2. grad af Dannebrog og æresdoktor af det Filosofiske Fakultet ved Københavns Universitet.
- Ebook
- 99.00 kr.
-
From 27.99 kr. Hænsna-Þóris saga fjallar um átök á milli bænda. Hænsna-Þórir þótti heldur ógeðfelldur maður. Hann var upphaflega fátækur en reis upp úr fátæktinni og gerðist bóndi. Þóri var gjarnan uppsigað við nágranna sína sem hann hafði jafnan grunaða um að líta niður á sig. Þegar heyskortur varð þurftu grannarnir þó að leita til Þóris sem neitaði þá að selja þeim hey. Vegna þessa urðu svo átök í kjölfarið.Verkið er heldur frábrugðið helstu Íslendingasögum en hefur það verið nefnt að sagan sé viðbrögð við lögum Magnúsar lagabætis Noregskonungs. Lög þau kváðu á um að þeir bændur sem veitt gætu hey í heyskorti væru skyldugir að gera svo. Taldist það því ekki glæpur eða refsivert að herja á bónda sem neitaði í slíkum aðstæðum. Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
From 28.99 kr. Kjalnesinga saga tilheyrir flokki yngri Íslendinga sagna en hún er talin rituð eftir aldamótin 1300. Sagan ber merki um skyldleika við þjóðsögur og einnig fornaldar- og riddarasögur. Höfundur virðist leggja mikið upp úr því að skemmta lesandanum í þessari sögu.Verkið segir frá landnámsmönnum Íslands en hefst á því að Helgi Bjóla nemur land á Kjalarnesi og giftist Þórnýju, dóttur Ingólfs Arnarsonar. Við sögu koma einnig Þorgrímur og Arngrímur synir þeirra hjóna, Örlygur, Andríður, Kolli og Esja ásamt fleirum. Verkið er auðlesið auk þess að vera skemmtilegt aflestrar.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
From 28.99 kr. Króka-Refs saga segir frá Refi Steinssyni sem hrekst frá Íslandi vegna deilna. Ferðast hann þá víða og fer meðal annars til Grænlands, Danmerkur og Noregs. Þrátt fyrir að teljast ekki til vinsælustu Íslendingasagna er sagan um margt skemmtileg. Hún minnir á riddarasögur eða fornaldarsögur Norðurlanda.Verkið er ólíkt helstu Íslendingasögum að því leyti að söguhetjan, Refur, er ekki sérlega líkur algengustu hetjum og stórmennum. Hann er nokkurs konar blanda af andhetju og ofurhetju. Til að mynda hikar hann ekki við að beita brögðum til að ná sínu fram og kemur sér hjá beinum átökum án nokkurrar skammar. Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
-
48.99 kr. Vatnsdæla saga hefst upphaflega í Noregi en færist svo heim til Íslands. Hún segir frá Ingimundi gamla og landnámi hans í Vatnsdal þar sem hann settist að og gerðist ættarhöfðingi. Verkið hefst eins og fleiri Íslendingasögur í heiðni en endar í kristni.Vatnsdæla saga er ættarsaga og fjallar um sögu fjögurra ættliða. Hún gerist í kring um árið 900 og telst því til yngri verka Íslendingasagnanna. Talið er að sagan hafi verið rituð á 13. öld.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
48.99 kr. Reykdæla saga og Víga-Skútu er verk sem varðveitt er í handritum sem rituð voru á Íslandi í lok 17. aldar. Verkinu er skipt í tvær sögur en lítið samhengi er milli þeirra og hefur því verið haldið fram að um sé að ræða tvær sjálfstæðar sögur.Sú fyrri segir frá Vémundi kögri og gerist að mestu í Reykjadal en þar kemur einnig við sögu Áskell goði og skipar stóran sess í frásögninni. Síðari sagan segir frá Víga-Skútu syni Áskels en sá bjó í Mývatnssveit og gerist sú saga að mestu þar. Kemur þar fyrir bærinn Skútustaðir sem hreppurinn dregur nafn sitt af í dag.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
48.99 kr. Gull-Þóris saga hefur einnig verið nefnd Þorskfirðinga saga. Sögusvið hennar er Ísland og einnig Noregur á köflum. Hún segir frá Gull-Þóri Oddssyni, syni Odds skrauta, sem var höfðingi í Þorskafirði. Átti sá maður í deilum við Hall nágranna sinn. Deilurnar snéru að því að Þórir hafði farið utan í hernað ásamt syni Halls, Hyrningi. Á ferðum sínum efnaðist Þórir mjög og vildi Hallur fá hlut af gulli hans fyrir hönd sonar síns en því var Þórir vitaskuld ósammála. Upphófust miklir bardagar í kjölfarið en enduðu þeir ferðafélagar Þórir og Hyrningur þó sáttir að lokum.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
21.99 kr. Grænlendinga þáttur er stutt saga sem tilheyrir ritum Íslendingasagnanna. Verkið fjallar aðallega um þá Einar Sokkason frá Bröttuhlíð og mann að nafni Össur og bardaga sem átti sér stað þeirra á milli. Sokki faðir Einars leitaði í kjölfarið sátta á þingi en mætti þar ósætti Símonar, frænda Össurar. Sá taldi bæturnar sem um ræddi heldur fálegar og endaði það með vígi milli þeirra tveggja.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 21.99 kr.
-
48.99 kr. Svarfdæla saga segir frá landnámi og deilum í Svarfaðardal og dregur hún þaðan nafn sitt. Ljótólfur goði á Hofi og Þorstein svörfuður á Grund áttu þar í deilum. Skáldið og berserkurinn Klaufi Hafþórsson kemur einnig við sögu ásamt hinni skapstóru Yngveldi fagurkinn.Sagan er ekki sérlega trúverðug en hafa þó fornminjar þótt benda til þess að í henni sé sannur kjarni. Verkið er ekki sérlega vel varðveitt og í hana kann að vanta kafla ásamt því að stór eyða er í sögunni. Ekki mátti miklu muna á að sagan í heild sinni hefði glatast.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
48.99 kr. Víglundar saga er skáldsaga og ein fyrsta þeirrar greinar hér á landi. Sögusvið bókarinnar er Snæfellsnes, Noregur og austfirðir að mestu. Hún gerist á 10. öld en talið er að hún hafi verið rituð á síðari hluta 14. aldar. Hún er svo varðveitt í tveimur skinnhandritum frá 15. öld.Verkið fjallar um ástir, líf og áskoranir þeirra Víglundar og Ketilríðar. Þau kynnast þegar Ketilríður er send í fóstur til foreldra Víglundar ung að aldri. Gerist það svo að Víglundur heldur til Noregs og Ketilríður er lofuð bónda nokkrum austur á fjörðum þegar hann kemur heim. Rekur Víglund einmitt á land fyrir austan, sökum vinda og þykist hann þar kannast við konu bóndans. Sagan tekur óvænta stefnu fyrir lesandann og ýmislegt óvænt kemur í ljós.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
48.99 kr. Þórðar saga hreðu er ein Íslendingasagnanna og talin með þeim yngri í þeim flokki. Líklegt þykir að hún sé rituð í kring um 1350. Sögusvið hennar er að mestu Miðfjörður í Húnaþingi og Skagafjörður.Söguhetja bókarinnar er Þórður hreða eins og titillinn gefur til kynna. Þórður þessi flúði Noreg eftir að hafa vegið sjálfan Sigurð Gunnhildarson konung í Noregi. Settist hann svo að norður í landi og var hann orðaður við smíði margra nafnkunna húsa en hann reisti meðal annars skála Flatatungu í Skagafirði.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.
-
32.99 kr. Valla-Ljóts saga er Íslendingaþáttur sem fjallar um deilur og mannvíg í Svarfaðardal í kring um aldamótin 1000. Sagan er framhald af deilum þeim sem segir frá í Svarfdæla sögu. Bræðurnir Hrólfur, Halli og Böðvar standa frammi fyrir því að móðir þeirra hyggst gifta sig aftur og leggst einn bræðranna gegn því. Upphefjast þá deilur þar sem Valla-Ljótur kemur við sögu ásamt Guðmundi ríka.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 32.99 kr.
-
21.99 kr. Þorsteins saga hvíta er eins konar inngangur að Vopnfirðinga sögu. Hún segir frá Þorsteini, afa Brodd-Helga, sem tók drenginn ungan til sín í fóstur eftir að Þorgils faðir hans lést. Sagan er jafnan kölluð þáttur eins og á við um fleiri styttri sögur sem tilheyra öðrum stærri verkum.Verkið er varðveitt í fleiri en einni útgáfu og ber þeim ekki saman að öllu leyti sem skýrir að sum nöfn persóna hafa skolast til. Verkið er hvergi að finna á skinni en sagan þó talin sönn í sögulegu tilliti og vel rituð.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 21.99 kr.
-
32.99 kr. Vopnfirðinga saga segir frá deilum manna á milli í Vopnafirði á söguöld. Aðalpersóna sögunnar er Brodd-Helgi Þorgilsson. Sá ólst upp hjá afa sínum eftir að faðir hans var veginn. Viðurnefnið hlaut Helgi þegar hann aðstoðaði heimanaut í vígum við aðkomunaut með því að binda mannbrodd sinn á enni þess. Geitir Lýtingsson, Blængur og Halla koma einnig við sögu en deilur urðu milli þeirra Helga og Geitis. Berast svo hefndir milli manna uns sættir verða eins og tíðkast í flestum Íslendingasögum.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 32.99 kr.
-
48.99 kr. Víga-Glúms saga er með elstu Íslendingasögum en hún er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar. Verkið er ævisaga og á sér stað á 10. öld. Söguhetja þess er Glúmur Eyjólfsson en hann var mikill vígamaður og hlaut þannig nafnið Víga-Glúmur. Hann hefur jafnvel verið talinn svipa til sjálfs Egils Skalla-Grímssonar, grimmustu hetju Íslendingasagnanna.Glúmur bjó á Þverá í Eyjafirði, hann var skáldmæltur en þótti einnig klókur bragðarefur. Upphaflega hélt hann til Noregs að sanna sig hjá frændum sínum en síðar hélt hann heim þar sem hann átti í deilum við nágranna sína eins og flestar hetjur Íslendingasagnanna.Sagan er sögð á skoplegan hátt og er hún háði blandin og skemmtileg lestrar.Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
- Audiobook
- 48.99 kr.