Tungumálin þrjú

book 61 in the Grimmsævintýri series

About Tungumálin þrjú

Í ævintýrinu Tungumálin þrjú segir frá gömlum aðalsmanni sem átti einn son. Aðalsmaðurinn sendir son sinn til frægra kennara í öðrum löndum því sonurinn þótti svo heimskur og virtist ekkert geta lært. Allar tilraunir til þess að kenna syni aðalmannsins misheppnuðust, að því er virtist í fyrstu, og í bræði sinni vísar aðalsmaðurinn syni sínum á dyr. Sonurinn hefst við í skóginum og virðist geta leyst úr ótrúlegustu vandamálum sem upp koma í sveitunum í kring, þökk sé náminu sem faðir hans taldi einskis vert. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra. Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Show more
  • Language:
  • Icelandic
  • ISBN:
  • 9788728038765
  • Format:
  • MP3
  • Protection:
  • Digital watermark
  • Published:
  • February 5, 2022
  • Narrator:
  • Árni Beinteinn Árnason
Delivery: Immediately by email

Description of Tungumálin þrjú

Í ævintýrinu Tungumálin þrjú segir frá gömlum aðalsmanni sem átti einn son. Aðalsmaðurinn sendir son sinn til frægra kennara í öðrum löndum því sonurinn þótti svo heimskur og virtist ekkert geta lært. Allar tilraunir til þess að kenna syni aðalmannsins misheppnuðust, að því er virtist í fyrstu, og í bræði sinni vísar aðalsmaðurinn syni sínum á dyr. Sonurinn hefst við í skóginum og virðist geta leyst úr ótrúlegustu vandamálum sem upp koma í sveitunum í kring, þökk sé náminu sem faðir hans taldi einskis vert.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.